 |
Hvað varð um okkur? Fann grein i DV safni frá 1999. Myndin er tekin i Studío Sjónvarpsins 1976 och er til kvikmynd um okkur,, veit ekki hvort það sé til ennþá. En gaman væri að sjá
Við vorum i flottum Hlekkja búningum! Sérsaumaðar gallabuxur och peysur med "Hlekkir" stafi á framan.. ég á þessa peysu en idag.
Kiktu á alla fréttina i PDF neðan.
PS! það sem er skrifað um mig i þessari grein er bara bull og vitleysa!
|
Árin á Ìslandi!
Fæddur 62 í Reykjavik, bjó á Kópavogsbraut i Kópavogi sem polli og lék við Guðjón, Jens sem eru hvað ég veit frægir tenorar og svo Jóhann sem er Skólastjóri i hjómlista skóla í Íslensku sveitaparadísi. Ég man að kennarinn minn í Kársnesskóla hét Nina.
Sviþjóð
1970 fluttumst við fjölskyldan til Malmö - Sviþjóðar eins og margir landar gerðu á Kockums árunum. Við íslensku strákar höfðu eigin klíku með eigið mál til þess að vega upp á móti albönsku, júguslavisku och tyrknensku strákaklikunum.
Þessi ár i Rosengård voru mjög skemtileg þar sem aðaláhugi var fótbolti och Malmö FF.
Breiðholt 1975
Ég bjó nú í Breiðholti í Reykjavik og var kallaður eftir því “Breiðholt” hjá gömlu vinum i Kópavogi.
Það gekk ekki vel fyrir mér i Fellaskóla þvi að ég var nýkomin til íslands, notaði bjagað mál sem var mix af sænsku, íslansku og öðrum suðurlanda aðkomuorðum og öðruvísi hefðum sem gerði það að kennarar voru oft að gera lítið úr mér fyrir framan allan bekkinn. Það var eitt atvik sem þeir voru að margtaka sem skemtiatriði fyrir bekkin var að setja upp dæmi á töfluna sem ég átti að leysa, hvað er 1 sinum 2 = hvað er það, sem var skrifað á þennan hátt, 1 · 2 = ? .. þetta kunni ég ekki og var gerður að hálvita, Ég lærði þetta i sviþjóð sem, 1 X 2 = ?. En ekkert var lagt niður að skýra þetta út fyrir mér því að ég var bara fáviti,, jävla bra start...
Hjómsveitin hlekkir.
Ég notaði allar frístundir til þess að umgangast gömlu vinina i kópavogi þar sem án fyrivara var settur i hjómsveit, ég varð að læra öll þessi 3 lög fyrir helgina því að við áttum að taka þátt i hæfileikakeppni í Kópavogsbío. Við komum svo í þriðja sæti. Ég , þröstur nafni, Jóhann, och littli Birgir sem var frábær á trommur.
(Afhverju kalla Þröst nafna minn, jú ég heiti Þröstur Víðir en nota bara nafnið Víðir hérna úti)
Við æfðum bæði i bilskúrnum heima hjá Johanni og siðan sinna í kjallara Kársnesskóla þar sem skólahjómsveit kópavogs átti heima. Jóhan. Þröstur og Biggi voru i þessari skólahjómsveit. Einnig voru margir góðir i skólahjómsveitini sem notuðu skrifstofuna á kvöldin til þess að fá ser i pipu og hringja at samtöl til útlanda. Það var alltaf gaman að læra ný islensk orð eins og td. “að vera skakkur” sem betur fer varð maður aldrei svloeiðis, he he “Mamma skildi þó aldrei afhverju að ég ekki vildi gangast skólahjómsveitina” ha ha.
Maður var nú komin með annan áhuga en fótbolta, spila á gitar, vá.. svaka áhugi. Maður sat i herberginu sinu i Rjúpufellinu og pirraði alla nágranna sína með hávaða í rafmagnsgítarinum
och síðan skein sjónvarpið och skólahjómleikar og annað skemtilegt næstu árin með Gunnstein, Ævar og öðrum. Það versta við þetta timabili var að eiga heima í Breiðholti, allir hinir sem voru í hlekkjum bjuggu í Kópavoginum og löbbuðu á æfingar og ég fékk að væla i pabba um að keyra mig, taka 4 strætisvagna. Ég keypti svo loksins hondu til þess að redda þessu með að komast á æfingar.
Hondan sem ég keypti var gamalt 50 kúbik mótorhjól og var ekki til þess að treysta á. þessi honda varð til þess að ég var rekin úr grúbbuni hlekkjum af Jóhanni, nefnilega að helvítis hondan bilaði á breiðholtsbrautinni þegar ég var á leiðinni á þessa mikilvægu æfingu.
Hjómsveitin KOS
Ég fluttist aftur til sviþjóðar með foreldrum minum og það var ekkert spennadi að ske svo að ég fór einn tilbaka til islands, var að vinna i fiski í Grindavik og á kvöldin sat maður með gitarin og samdi á fullu. Ég kallaði seinna á félaga í gömlu hlekkjum en það var voða litill áhugi hjá Ævari og (sá skeggjaða, man ekki nafnið) en ég fékk þó nafna minn á gitar með mér, Jón á trommur, Svanþór á bassa og svo Svan sem söngvara. Við fórum og tókum upp lögin okkar i bilskúrs stúdíó hjá Rabba siðan skrapp ég með upptökurnar til Malmö. Ég heimsótti Bengt Grafström hjá Sveriges Radio. Bengt var með skrifborð ofurhlaðið með kasettum frá allskonar grúbbum sem vildu vera með i útvarpþættum hans, hann spurði ef ég hafði einhverra góða ástæðu hversu han ætti að hlusta á kasettuna mina, þetta er “unikt” svaraði ég. Han hringdi i mig seinna sama kvöld og bað um að koma strax dagin eftir. Þannig byrjaði fyrsta útgáfan af grúbbuni KOS, sem hét þá Choice i sviþjóð.
Melarokk Minnir þó að fyrsta framkoma hjá okkur á Íslandi var Melarokk, ég man ekki alveg hvernig þetta var en má leggja inn “comments” neðst á síðunni. Kos var núna bara ég, nafni of Jón,, Svanþór gerði kærustuna ólétta og varð að fara vinna fyrir nýju heimili sínu, Svanur hvarf á fyllerí og fanst aldrei aftur svo ég varð að breyta um og kaupa mér bassa og tilfellið varð svo að ég seldi fender gitarin á umoðsölu hjá Tónkvisl og sú sem keyppti gitarin var gitarleikaran i Grylunum. Ég hitti skömmu siðar Grylunar á skemtistaðnum borginni spurði hvernig henni fanst að spila gamla gitarin minn og nefndi að mér dauðvantaði góðan bassa sagði þá Ragga við mig að Herdis (bassaleikari í grýlunum) ætlaði að selja sinn, Ég keypti svo Aria bassan af Herdísi og á hann ennþá.
Skemtilegir tímar....
Svo hætti KOS. Það voru meðlimir sem vildu ekki lengur spila billegt popp, mig minnir að orðavalið var "að frekar spila djúpa sálarmúsik sem framhefur hugsun á öðru stigi",, yes whatever...:þ)
Fór siðan tilbaka til þess að halda áfram með nám i Malmö eftir að hafa verið á flakki um heimin og hér er ég enn idag.
Ég hef fundið smá gömul “úrklipp” úr blöðum sem ég hef fundið á netinu, gaman að lesa þetta eftir svo mörg ár..
PS! ástæðan að rifja þetta upp er að kanski einhver hefur gaman af þessu og að maður er orðin hálf gamall og senill,, og að ég kanski gleimi þessu öllu á morgun :þ).
Hefur þú eitthvað að bæta við,, Please! (myndir óskast :-)
|
Hlekkir - Hvar eru þeir nú?
Grein um "Hljómsveitin hekkir" og um hvað það hefur gerst síðan þess. |
|